Tökum vel á móti Gallup!
Á undanförnum vikum hafa Hlíf, Efling og VSFK lagt drög að árlegri Gallup könnun félaganna sem að þessu sinni er mikilvægari en oft áður vegna undirbúnings fyrir komandi kjarasamninga. Leitað er eftir gagnlegum upplýsingum og viðhorfum félagsmanna til þess að geta betur mótað og byggt upp ýmis atriði við kröfugerð félaganna í samningunum. Þetta á meðal annars við um breytingar á tekjum, afkomu þeirra sem lent hafa í atvinnuleysi og fjárhagsstöðu heimilanna. Það er afar brýnt að ná til sem flestra af 3000 manna úrtaki félagsmanna sem fá erindi um að taka þátt í þessu verkefni. Veglegir vinningar eru í happdrættispotti sem allir fara sjálfkrafa í sem taka þátt í könnuninni.
Vegna kjarasamninganna er könnunin viðameiri en oft áður og spurt um fjölmörg atriði sem snerta launakjör, réttindamál, þjónustu félaganna og ýmis atriði er snúa að viðhorfum þeirra til þess sem er að gerast á vinnustöðum þeirra og um stöðu heimilanna.
Á næstu dögum mun Capacent Gallup hafa samband við félagsmenn og vilja félögin eindregið hvetja alla sem leitað verður til til þess að taka þátt og vera með, því hærra svarhlutfall sem Gallup fær því marktækari verður niðurstaðan og félögin hafa gott veganesti og gögn að vinna úr.
Úrtakið er tilviljanakennt og nær til 3000 félagsmanna á öllum kjaramálasviðum og er hægt að svara bæði í síma og einnig á netinu. Könnunin nær einnig til þeirra sem eru án atvinnu svo hægt sé að greina og skoða hvað bæta má í kjörum þeirra og hvaða áhrif atvinnumissir hefur á lífskjör þess.
Þeir sem taka þátt í könnunni og svara henni lenda í happadrættispotti. Þar eru veglegir vinningar í boði, fyrsti vinningur er að upphæð kr. 100 þúsund, annar vinningur kr. 50 þúsund auk fimm vinninga sem eru, vikudvöl í orlofshúsum félaganna.
Þá er bara að setja sig í stellingar og búa sig undir gott viðtal við Gallup eða taka sér tíma til að svara á netinu lendir þú í úrtakinu.
Verum jákvæð og komum upplýsingum til félagsins með góðri svörun
|