Skip to main content

Allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör stjórnar

By 12.01.2017April 12th, 2019Fréttir, Uncategorized

Verkalýðsfélagið Hlíf auglýsir: Allsherjar atkvæðagreiðsla um kjör stjórnar.

Samkvæmt B- lið laga Hlífar skal kjósa á árinu 2017 í eftirtaldar stöður:

  1. Varaformann og tvo meðstjórnendur til tveggja ára
  2. Þrjá varamenn í stjórn til tveggja ára
  3. Tvo félagslega skoðunarmenn reikninga og einn til vara til eins árs
  4. Stjórn sjúkrasjóðs, formann, varaformann og ritara til eins árs og jafn marga til vara
  5. Stjórn orlofsheimilasjóðs, formann, varaformann og ritara til eins árs og jafn marga til vara

Tillögur uppstillingarnefndar Verkalýðsfélagsins Hlífar liggja frammi á skrifstofu Hlífar frá og með 12. janúar 2017. Öðrum tillögum ber að skila á skrifstofu Hlífar að Reykjavíkurvegi 64, 220 Hafnarfirði, fyrir klukkan 16:00 föstudaginn 20. janúar 2017 og er þá framboðsfrestur útrunninn. Til þess að bera fram lista eða tillögur þarf skrifleg meðmæli eða stuðning 1/10 hluta fullgildra félagsmanna, þó ekki fleiri en 150.

Kjörstjórn Verkalýðsfélagsins Hlífar