Skip to main content

Fyrsti vetrardagur er á morgun og því kominn tími til að setja vetrardekkin undir bílinn, en frá 1. nóvember er löglegt að aka um á nagladekkjum.  Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 29 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið sl. miðvikudag.

Mestur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti á jeppa (t.d. Mitshubishi)  með 18´´ álfelgum (265/60R18) sem var ódýrust á 7.157 kr. hjá Bifreiðaverkstæði S.B á Ísafirði en dýrust á 12.980 kr. hjá N1, verðmunurinn var 5.823 kr. eða 81%. Fyrir stálfelgu af sömu stærð er þjónustan ódýrust hjá Bifreiðaverkstæði S.B. á Ísafirði á 7.157 kr., en dýrust á 11.800 kr. hjá Kaldasel verðmunurinn var 4.643 kr. eða 65%.

Minnstur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti undir smábíl,  minni meðalbíl og meðalbíl á 14, 15 og 16´´ stálfelgu (175/65R14, 195/65R15 og 205/55R16), sem var ódýrust á 4.990 kr. hjá Dekkjahúsinu Kópavogi, en dýrust á 6.950 kr. hjá Kletti, verðmunurinn var 1.960 kr. eða 39%. Fyrir 14 og 15´´álfelgu er þjónustan ódýrust á 4.990 kr. hjá Dekkjahúsinu en dýrust á 7.590 kr. hjá N1, verðmunurinn var 2.600 kr. eða 52%. Fyrir 16´´ álfelgu er þjónustan ódýrust á 4.990 kr. hjá Dekkjahúsinu en dýrust á 7.980 kr. hjá N1, verðmunurinn var 2.990 kr. eða 60%.

Skipting, umfelgun og jafnvægisstilling fyrir jeppling (t.d. Toyota Rav) á 16´´ álfelgum (225/70R16) var ódýrust á 5.990 kr. hjá Dekkjahúsinu Kópavogi en dýrust á 9.780 kr. hjá N1, verðmunurinn var 3.790 kr. eða 63%. Fyrir bíl með stálfelgu af sömu stærð var þjónustan ódýrust á 5.990 kr. hjá Dekkjahúsinu en dýrust á 8.900 kr. hjá Kletti, verðmunurinn var 2.910 eða 49%. 

12 hjólbarðaverkstæði með sama verð og í fyrra
Þegar verð fyrir fyrrgreinda þjónustu hjólbarðaverkstæða er borin saman við verðið í fyrra kemur í ljós að tólf þeirra hafa ekki hækkað hjá sér verðið á þjónustu við dekkjaskipti á meðalbíl með 16´´ álfelgu (205/55R16) síðan í október 2012. Mesta hækkunin var hjá Gúmmívinnustofunni SP dekk 19% og þar á eftir kom hækkun hjá Vöku upp á 11%, einnig hefur verðið hækkað hjá Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns og Kletti um 9%.

Sjá nánar niðurstöður í töflu.

Max 1, Dekkjahöllin, Pústþjónusta BJB, Nesdekk, Gúmmívinnslan, Hjólbarðaþjónusta Magnúsar, Bílaverið, Bílaverkstæði Austurlands, Höldur Dekkjaverkstæði, Vélrás, Bifreiðaverkstæði Grafarvogs, Smur, bón og dekkjaþjónustan gerðu verðlagseftirlitinu ókleift að framkvæma verðkönnun.
Kannað var verð á þjónustu við dekkjaskiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu á álfelgum og stálfelgum af stærðum 14,15, 16 og 18´´ á 29 hjólbarðaverkstæðum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Verðin í könnuninni eru án afsláttar en verkstæðin bjóða upp á margskonar afsætti t.d. FÍB, eldri borgara og staðgreiðslu, viðskiptavinir eru því hvattir til að spyrja um afslátt.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.