Skip to main content

8. mars er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Af því tilefni efna helstu samtök launafólks á vinnumarkaði til opins rafræns fundar undir yfirskriftinni “Konur í kafi – kynjajafnrétti á tímum heimsfaraldur”.

Dagskrá:
“Bakslag eða afhúpun: Heimilislíf og jafnrétti í fyrstu bylgju Covid frá sjónarhóli mæðra.” Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, lektor í félagsfræði við HA, og Valgerður S. Bjarnadóttir, nýdoktor við menntavísindasvið HÍ.
“Framlínukonur á tímum Covid.” Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.
“Spritta, tengjast, vinna.” Donata Honkowicz-Bukowska, grunnskólakennari og kennsluráðgjafi í málefnum nemenda með íslensku sem annað mál.
Umræður

Fundarstjóri er Drífa Snædal, forseti ASÍ.Viðburðurinn verður tekinn upp og aðgengilegur fljótlega eftir fundinn.

Zoomslóð á fundinn https://us02web.zoom.us/j/85277321283