Skip to main content

Verkalýðsfélagið Hlíf sendir Eflingu baráttukveðjur vegna boðaðra aðgerða félagsins gagnvart Reykjavíkurborg. Hlíf tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í tilkynningu frá Starfsgreinasambandinu, en hún er svohljóðandi:

“Það eru grundvallarréttindi launafólks að geta bundist samtökum til að berjast fyrir sínum kjörum, sá réttur er alger og er ekki hægt að svipta fólk þeim rétti á vafasömum forsendum. Efling stéttarfélag hefur boðað til verkfalla félagsmanna sem starfa hjá Reykjavíkurborg en viðræður aðila hafa engum árangri skilað. Starfsgreinasamband Íslands styður réttmætar kröfur um að fólk geti lifað af sínum launum og minnir félagsmenn sína á að ganga ekki í störf félaga sinna sem í verkfalli og sendir Eflingu baráttukveðjur. “