Skip to main content

Um námið

Markmið námsins er að auka þekkingu, færni og fagkunnáttu þeirra sem sinna einstaklingum sem þurfa aðstoð
eða sérhæfða þjónustu við athafnir daglegs lífs.
Félagsliðagátt er fyrir þá sem hafa náð 22 ára aldri og eru með a.m.k. þriggja ára starfsreynslu við
umönnunarstörf. Nemendur þurfa einnig að hafa lokið 190 klukkustunda starfstengdum námskeiðum.
Hjá Mími ljúka nemendur 4 önnum af 6, en til að útskrifast sem félagsliði ljúka nemendur síðustu tveimur önnunum í
framhaldsskóla. Námið hjá Mími jafngildir 86 framhaldsskólaeiningum.

Uppbygging náms

Kennslan er blanda af fjar- og staðnámi. Hver áfangi er kenndur í 4 vikur. Í upphafi og lok áfanga er
skyldumæting í tíma síðdegis á virkum degi. Þess á milli fer námið fram á netinu. Nemendur hlusta á fyrirlestra
heima, taka þátt í umræðum á netinu og vinna verkefni. Einnig verða í boði vinnustofur á Teams þar sem nemendur
hafa aðgang að kennara og geta mætt ef þeir vilja/þurfa.

Námsgreinar

Fög kennd á haustönn 2022

  • Upplýsingatækni
  • Íslenska fyrir félagsliða
  • Samvinna og samskipti
  • Öldrun

Fög kennd á vorönn 2023

  • Enska fyrir félagsliða
  • Fjölskyldan og félagsleg þjónusta
  • Fötlun
  • Gagnrýnin hugsun og siðfræði
  • Óhefðbundin samskipti

Skráðu þig núna!

Námið hefst 1. september og haustönn lýkur 15. desember.
Skráning fer fram hjá Mími á mimir@mimir.is.