Skip to main content

Fyrirtæki sem fá starfsfólk í gegnum starfsmannaleigur, bera ábyrgð á því að fólkið njóti fullra réttinda, samkvæmt nýlegum lögum um keðjuábyrgð. Þau geta því ekki nýtt starfsfólk frá starfsmannaleigum og vísað svo á starfsmannaleiguna ef brotið er á starfsfólkinu.

Starfsgreinasamband Íslands sendi í dag frá sér eftirfarandi yfirlýsingu, í tilefni af máli af þessu tagi sem hefur verið áberandi í umræðu síðastliðna daga.

Starfsgreinasamband Íslands lýsir yfir stuðningi við baráttu Eflingar og annarra stéttarfélaga við að tryggja réttindi launafólks. Starfsmannaleigur hafa verið að ryðja sér til rúms á íslenskum vinnumarkaði í auknum mæli á undanförnum misserum og hafa komið upp alltof mörg alvarleg tilvik um brot á réttindum og kjörum starfsfólks á þeirra vegum.

Þau fyrirtæki sem nota starfsmannaleigur verða að gera sér grein fyrir að þau bera fulla ábyrgð, skv. lögum um keðjuábyrgð, á því að starfmenn sem þau ráða í gegnum slíkar leigur njóti sambærilegra lög- og kjarasamningsbundinna lágmarkskjara og aðrir starfsmenn.

Það er algjörlega ólíðandi að það sé ítrekað brotið á erlendu starfsfólki sem kemur hingað til lands á vegum starfsmannaleiga og mun Starfsgreinasambandið nota öll tæki og aðferðir sem það hefur yfir að ráða til að stöðva slíkt háttalag og standa þétt við bakið á félagsmönnum og stéttarfélögum í þeirri baráttu.