Skip to main content

Verkalýðshreyfingin hefur kynnt áherslur sínar vegna aðgerða stjórnvalda í kjölfar COVID-19. Gerð er skýr krafa um að aðgerðirnar eigi fyrst og fremst að snúast um hagsmuni og afkomu almennings. Bæta þurfi stöðu þeirra sem hafa misst vinnuna og tryggja afkomuöryggi fyrir alla. Fyrirtæki sem misnota úrræði stjórnvalda, skuli sæta viðurlögum.

Áherslur ASÍ vegna næsta efnahagspakka í kjölfar COVID-19

Stjórnvöld hafa boðað kynningu á nýjum efnahagspakka vegna áhrifa COVID-19. Alþýðusamband Íslands hefur kynnt ítarlegar áherslur sínar fyrir stjórnvöldum. ASÍ leggur áherslu á að þessi efnahagspakki tryggi meðal annars eftirfarandi þætti:

Fyrir fólk, ekki fjármagn

  • Aðgerðir stjórnvalda eiga fyrst og fremst að snúast um að tryggja afkomu launafólks og hagsmuni almennings.
  • Tryggja þarf nægilegt fjármagn og nauðsynlegar aðgerðir til að bæta stöðu hópa atvinnulausra og þeirra sem hafa veika stöðu á vinnumarkaði.
  • Námsmenn hafi möguleika á eðlilegum framgangi í námi.
  • Beina þarf fólki inn í menntun og framhaldsfræðslu sem virkar til framtíðar og tryggja að stuðningur við nýsköpun stuðli með beinum hætti að atvinnusköpun.
  • Stjórnvöld þurfa að sýna fram á að aðgerðir þeirra stuðli að jöfnuði, jafnrétti og sjálfbærni og að staðinn sé vörður um heimilin í landinu í gegnum efnahagslægðina.
  • Stuðningur við fyrirtæki á að vera skilyrtur því að störfum sé viðhaldið eða ný störf sköpuð og grundvallarréttindi launafólks séu virt.
  • Til að hljóta frekari stuðning þurfi fyrirtæki og eigendur að hafa nýtt eigin bjargir og undirgangast skilyrði um að greiða ekki út arð eða kaup hlut í sjálfum sér næstu tvö ár.
  • Fyrirtæki sem svindla á úrræðum stjórnvalda eiga að sæta viðurlögum.

Afkomuöryggi fyrir alla

  • Bráðabirgðaákvæði um hlutabætur atvinnuleysistrygginga þarf að framlengja en að óbreyttu fellur það úr gildi þann 1. júní n.k.
  • Hækka þarf atvinnuleysisbætur þegar í stað en grunnbætur eru umtalsvert lægri en lágmarkslaun og þak vegna tekjutengingar er oft lágt.
  • Einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma og þungaðar konur sem skv. ráðleggingum heilbrigðisyfirvalda eiga að halda sig heima þurfa að falla undir lög um laun í sóttkví.
  • Tryggja þarf afkomu launafólks hjá fyrirtækjum sem skv. fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda þurfa að hætta starfsemi alfarið og foreldra sem ekki geta sótt vinnu að fullu vegna skerts skólastarfs í leik- og grunnskólum.
  • Tryggja þarf húsnæðisöryggi, meðal annars með því að hækka húsaleigubætur, flýta hlutdeildarlánum fyrir fyrstu kaupendur og fjölga almennum íbúðum.
  • Aðgerðir stjórnvalda þurfa að ná til öryrkja og ellilífeyrisþega.
  • Ríki og sveitarfélög og fyrirtæki sem vel standa verða að tryggja sumarstörf fyrir námsmenn á komandi sumri, samhliða því að boðið verði upp á styrki til námsmanna til að stunda nám á sumarönn. námsmanna til að stunda nám á sumarönn.

ASÍ mun kynna áherslur sínar nánar á næstu dögum og birta tillögur um frekari vinnumarkaðsaðgerðir, nýsköpun og menntun, stöðu heimilanna og uppbyggingu samfélagslegra innviða til framtíðar.