Skip to main content

Kjaradeilu átján aðildarfélaga SGS, þar með talið Hlífar, hefur verið vísað til Ríkissáttasemjara.

Viðræðunefnd Starfsgreinasambands Íslands, vegna kjarasamninga við Fjármálaráðherra f.h. Ríkissjóðs,  samþykkti á fundi í dag, fyrir hönd 18 aðildarfélaga,  að vísa kjaradeilunni til Ríkissáttasemjara.

Þessi ákvörðun var tekin í framhaldi af samningafundi í gær og ganginum í viðræðum undanfarna mánuði, en kjarasamingurinn rann út 31. mars 2019.

Jafnframt var farið fram á það við sáttasemjara að hann boði til fundar eins skjótt og auðið er, enda algerlega óástættanlegt að launafólk bíði mánuðum saman eftir því að sest sé að samningaborðinu af alvöru.