Skip to main content

Lífeyrissjóðir landsins opnuðu í dag aðgang að Lífeyrisgáttinni, nýrri leið sjóðfélaga til að fá á einum stað upplýsingar um áunnin lífeyrisréttindi sín í samtryggingarsjóðum. Sjóðfélagar fá aðgang að Lífeyrisgáttinni á heimasíðum lífeyrissjóðanna og nota þar sama aðgangsorð og gildir fyrir sjóðfélagavefi.

Algengt er að fólk eigi réttindi í mörgum lífeyrissjóðum, til dæmis frá þeim tíma þegar það vann með námi hér og þar. Aðrir hafa skipt oft um starf á ferlinum og skipt þá gjarnan um lífeyrissjóð í leiðinni.

Hingað til hafa sjóðfélagar fengið send yfirlit um hvar þeir eiga lífeyrisréttindi en orðið að sækja sjálfir upplýsingar um hver þau réttindi nákvæmlega eru frá fyrri tíð. Nú opnast þeim greið leið með Lífeyrisgáttinni að þessum upplýsingum.