Skip to main content

Drífa Snædal, ávarpaði þing Evrópusambands verkalýðsfélaga, ETUC fyrir skemmstu og sagði m.a. að á Íslandi hefði verið brugðist við kreppunni með öðrum hætti en í mörgum öðrum Evrópuríkjum. Hún sagði m.a. :

„Við lögðum ekki mælikvarða kapítalismans og peninganna til grundvallar við mat á grunngildum okkar, hornsteinum velferðarkerfisins, sem var hlutskipti margra annarra ríkja sem urðu illa úti í kreppunni.“

Hún lýst stuðningi við aðgerðaáætlun ETUC um Traustara lýðræði og betri framtíð í Evrópu fyrir vinnandi fólk og þá hugmyndafræði sem hún endurspeglar um að öfgar sem nú vaða uppi í Evrópu eru afleiðing af djúpstæðum vanda en ekki orsökin. „Við ræðum hvernig við getum varið og stuðlað að auknu lýðræði. Öfgarnar birtast með mismunandi hætti frá einu landi til annars en við vitum öll að fólk er allstaðar eins: „Við viljum öryggi, frið og réttinn til vinnu og sjá fyrir okkur sjálf.“

Drífa vísaði síðan til efnahagshrunsins á Íslandi fyrir rúmlega tíu árum þar sem sem bankarnir urðu gjaldþrota á innan við viku og afleiðingarnar voru fjölda atvinnuleysi, mikil verðbólga með hruni í kaupmætti og skuldum heimilanna. Í kjölfarið fylgdi mikil pólitísk ólga og andóf gegn hefðbundnum stjórnmálaflokkum og stofnunum samfélagsins. 

Drífa benti hins vegar á hægri öfgastefna hafi ekki náð fótfestu á Íslandi enn sem komið er. Hún þakkaði það meðal annars þeirri staðreynd að eftir hrunið komst vinstri stjórn til valda sem með samtali við aðila vinnumarkaðarins setti sér markmið um að verja lágmarkslaun, félagsleg réttindi launafólks og velferðarkerfið í stað niðurskurðar og árása á réttindi launafólks sem var veruleikinn víða annar staðar í Evrópu. „Við lögðum ekki mælikvarða kapítalismans og peninganna til grundvallar við mat á grunngildum okkar, hornsteinum velferðarkerfisins, sem var hlutskipti margra annarra ríkja sem urðu illa úti í kreppunni.“
Það væri líka eldsneyti þeirra hægri öfgaafla sem nú rísa víða, niðurskurður í velferðarkerfum, einkavæðing og veiking grunnstoðanna.