Skip to main content

Það getur verið bæði spennandi og krefjandi að vera með marga bolta á lofti bæði í einkalíf og á vinnumarkaði.

Að halda mörgum boltum á lofti í langan tíma eða fjölga boltunum, eins og gerist í sumum lífsköflum, getur verið áskorun fyrir jafnvægi í lífi og starfi.

Það getur líka verið heilmikil áskorun þegar boltunum fækkar í lífinu, hvað þá? Þetta námskeið er hugsað fyrir allt leikskólastarfsfólk sem vill hlúa að orku, endurheimt, jákvæðri heilsu og lífsgæðum í lífi og starfi.

Kennarar

  • Guðbjörg Björnsdóttir
    Iðjuþjálfi, MA-diplóma í jákvæðri sálfræði, yogakennararéttindi
  • Ingibjörg Valgeirsdóttir
    MBA, MA-diplóma í jákvæðri sálfræði, BA-uppeldis- og menntunarfræði, yogakennararéttindi

Eigendur og þjálfarar hjá fræðslufyrirtækinu Saga Story House.

Tímasetning:

  • Þriðjudaginn 29. nóvember
    kl. 9:00-12:00
  • Þriðjudaginn 6. desember
    kl. 9:00-12:00

Staðsetning:

  • Vinnustofa Sögu – Flatahrauni 3, 2. hæð, Hafnarfirði
    Sími: 6258550 / 6258560

Skráning

Hægt er að skrá sig með því að hringja í skrifstofu Hífar í síma 5 100 800, eða með því að senda tölvupóst:

hlif@hlif.is