Skip to main content

Mesta hækkun síðan í byrjun árs 2013 á þriggja tíma daglegri vistun ásamt síðdegishressingu í 21 dag er í Hafnarfirði en þar hefur gjaldskráin hækkað um 10%, í Vestmannaeyjum um 4%, á Akranesi um 3% og Akureyri um 1%. Þetta kemur fram í könnun Verðlagseftirlits ASÍ á breytingum á gjaldskrá fyrir skóladagvistun ásamt hressingu og verði á hádegismat fyrir yngstu nemendur grunnskólanna hjá 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins.

Mesta hækkunin á hádegismat er í Vestmannaeyjum en þar hefur gjaldið hækkað um 7% og á Akureyri um 6%. Mikill verðmunur er á heildargjaldi fyrir skóladagvistun með hressingu og hádegismat milli sveitarfélaganna. Lægsta mánaðargjaldið fyrir skóladagvistun m.v. 63 tíma á mánuði, hressingu og hádegismat hvern dag er hjá Sveitarfélaginu Skagafirði á 20.139 kr./mán. en hæsta gjaldið er hjá Garðabæ 33.201 kr./mán. verðmunurinn er 13.062 kr. eða 65%. Alls hafa sex sveitarfélög sem skoðuð voru hækkað gjaldskrána á þessari þjónustu milli ára, þau eru; Hafnarfjörður, Vestmannaeyjar, Akranes, Akureyri, Reykjanesbær og Seltjarnarnes. Ekki er tekið tillit til seðilgjalda eða annarra innheimtugjalda, sem leggjast ofan á gjöldin sem innheimt er jafnvel í tvennu lagi.

Fréttin öll.

Upplýsingar í töflu.