Skip to main content

Skrifað var undir nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga föstudagskvöldið 20. nóvember. Samningurinn gildir afturvirkt frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019. Samningurinn felur í sér eftirfarandi launabreytingar:       

  • Við upphaf samnings eða 1. maí 2015 hækka launataxtar um 25.000 kr. en að lágmarki um 7,7%  
  • Þann 1. júní 2016 hækka launataxtar um 15.000 kr. en að lágmarki um 5,5%.Þann 1. júní 2017 kemur inn ný launatafla þar sem bil á milli launaflokka verður leiðrétt í 1,1% á milli flokka, til samræmis við þá niðurstöðu sem samið var um 1. maí 2014.
  • Þann 1. júní 2018 hækka launataxtar um 2%.
  •  Sérstök eingreiðsla kemur 1. febrúar 2019 að upphæð kr. 42.500, miðað við þá sem eru í fullu starfi í desember 2018 og enn í starfi í janúar 2019.  Greitt er hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi.
  • Tekjutryggingin hækkar um 86.000 kr. á samningstímanum og verður komin í 300.000 kr. 1. maí 2018.

Þá hækkar desemberuppbót um rétt innan við 21% á samningstímanum og fer í 113.000 kr. í lok samnings og orlofsuppbætur um 21,5% verða 48.000 kr í lok samningstímans.

Atkvæðagreiðsla hefst 26. nóvember og atkvæði þurfa að hafa borist fyrir þriðjudaginn 11. desember nk. kl. 12.00 en síðar þann dag verður niðurstaðan kynnt.

Hægt er sjá samninginn í heild sinni hér….