Skip to main content

ASÍ sendi frá sér eftirfarandi frétt þar sem kemur fram að eignir Atvinnuleysistryggingarsjóðs verði á bilinu 6,3 til 6,5 milljarðar króna um næstu áramót. Tilefnið eru orð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra um að sjóðurinn væri í mínus og því hefði ráðherra ekki getað dreitt desemberuppbót til atvinnuleitenda í byrjun mánaðarins.

Nokkur fjöldi einstaklinga á atvinnuleysisbótum hefur haft samband, bæði við Alþýðusambandið og aðildarfélög þess, vegna ótta um að hætt verði að greiða atvinnuleysisbætur þar sem Atvinnuleysistryggingasjóður sé tómur og fjármagn ekki til staðar.

Tilefni þessara fyrirspurna er að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, lýsti í tíufréttum sjónvarpsins 17. desember stöðu Atvinnuleysistryggingasjóðs í tengslum við ákvörðun um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda með eftirfarandi hætti: „Til þess að það sé hægt þurfa að vera til peningar í sjóðnum. Það var ekki núna. Raunar er sjóðurinn þegar kominn í töluverðan mínus þannig að ráðherra hafði ekki fjármuni til að greiða út.“ Það fylgdi síðan með að tekist hafi að finna fé og því verði hægt að greiða út desemberuppbótina. Margir atvinnuleitendur hafa skilið orð forsætisráðherra þannig að greiðsla atvinnuleysisbóta á nýju ári séu í uppnámi enda fullyrti Sigmundur Davíð að engir peningar væru til í Atvinnuleysistryggingasjóði.

Í tilefni af framangreindum orðum forsætisráðherra er rétt að fram komi að Vinnumálastofnun áætlar að eignir Atvinnuleysistryggingasjóðs um næstu áramót verði á bilinu 6,3 til 6,5 milljarðar króna. Þar til viðbótar er rétt að árétta að greiðslur atvinnuleysisbóta byggja á lögum um það efni og eru allar breytingar háðar lagabreytingum, en ekki stöðu Atvinnuleysistryggingasjóðs.