Skip to main content

Drífa Snædal, forseti ASÍ undirritaði í dag samkomulag um launaþróunartryggingu til starfsmanna ríkis og sveitarfélaga. Þetta þýðir, að laun félagsmanna sem starfa hjá Hafnarfjarðarbæ eða Garðabæ munu hækka um 1,7 prósent að meðaltali vegna samkomulagsins og laun félagsmanna sem starfa hjá ríkinu (t.d. starfsfólk á Sólvangi) um 0,4 prósent að meðaltali. Launaþróunartryggingin er afturvirk og gildir frá 1. janúar 2019.

Samkomulagið er mikilvægur liður í að tryggja að launaþróun félagsmanna hjá ríki og sveitarfélögum dragist ekki aftur úr launaþróun á almennum markaði.

Samkomulagið sem var undirritað í gær, 16. apríl, var í dag er gert á grunni rammasamkomulags aðila vinnumarkaðarins frá október 2015. Aðild að samkomulaginu eiga íslenska ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Alþýðusamband Íslands, BSRB og Samtök atvinnulífsins.

Í rammasamkomulaginu er kveðið á um að launaþróun  þeirra sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum verði ekki lakari en á almennum vinnumarkaði. Með því er ætlunin að tryggja að laun opinberra starfsmanna sitji ekki eftir í almennri launaþróun.

Horft er til þróunar launa á almenna markaðinum annars vegar og hjá þeim félagmönnum sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum hins vegar á tímabilinu nóvember 2013 til nóvember 2018.

Samkomulag um launaþróunartryggingu