Skip to main content

Samstaða og samvinna á þingi Starfsgreinasambandsins

By 16.10.2013April 12th, 2019Fréttir, Uncategorized

Sjö fulltrúar frá Hlíf sitja 4. þing Starfsgreinasambands Íslands sem sett verður í Hofi á Akureyri i dag 16. október. Yfirskrift þingsins er Samstaða og samvinna. Þingið mun fjalla um kjaramál í aðdraganda kjarasamninga, atvinnumál almennt, húsnæðismál og fleira. Þegar formaður Starfsgreinasambandsins, Björn Snæbjörnsson hefur sett þingið munu þau Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra og Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ flytja ávörp. 

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) er landssamband almenns og sérhæfðs verkafólks. SGS er stærsta landssamband innan ASÍ, en 19 verkalýðsfélög eiga aðild að sambandinu með um 50 þúsund félagsmenn. Af þessum 19 félögum fer Starfsgreinasambandið með umboð fyrir 16 félög í komandi kjaraviðræðum en samkvæmt hefð semur Flóabandalagið sér, þ.e. Efling-stéttarfélag, Vlsfél. Keflavíkur og nágrennis (VSFK) og Vlf. Hlíf í Hafnarfirði.