Skip to main content

Í nótt náðist samkomulag við Rio Tinto um kjarasamning til eins árs, frá 1. júní 2020 að telja. Samninganefndir verkalýðsfélaganna hafa frest til 5. nóvember til að skrifa undir samninginn og er verkfallsaðgerðum frestað um þann tíma. Deiluaðilar munu halda áfram viðræðum til 5. nóvember, með það fyrir augum að semja til lengri tíma.

Samningurinn sem liggur fyrir, er mjög í anda þess samnings sem gerður var í álveri Norðuráls á Grundartanga og Lífskjarasamningsins.