Skip to main content

Slit á viðræðum við Rio Tinto Alcan í Straumsvík

By 30.06.2015April 12th, 2019Fréttir, Uncategorized

Samninganefnd Rio Tinto Alcan og SA slitu viðræðum við samninganefnd starfsmanna hjá álverinu

Um hádegisbil í gær, 29. júní, lauk 9. samningafundi vegna Rio Tinto Alcan, ISAL, hjá Ríkissáttasemjara.

Á fundinum slitu viðsemjendur okkar, ISAL og SA, viðræðum við samninganefnd starfsmanna. Ekki stendur starfsmönnum ISAL til boða að fá sambærilegar launahækkanir og almennur vinnumarkaður hefur samið um að undanförnu. Ljóst er að Samtök atvinnulífsins sem og fyrirtækið mun þar af leiðandi ýta málinu í enn meiri hörku.

Ljóst er að félagsmenn allra verkalýðsfélaganna hafa samþykkt að hefja vinnustöðvunarferli þann 1. ágúst næstkomandi en þá hefst yfirvinnubann starfsmanna. Átökin munu aukast þann 1. september næstkomandi þegar ótímabundið verkfall hefst.