Skip to main content

Atkvæðagreiðsla um samkomulag um framlengingu kjarasamnings milli Samtaka atvinnulífsins  vegna Rio Tinto á Íslandi hf. annars vegar og Verkalýðsfélagsins Hlífar og VR hins vegar hefst fimmtudaginn 5. nóvember 2020 klukkan 11:00.

Rafræn atkvæðagreiðsla um samkomulag um framlengingu kjarasamnings milli Samtaka atvinnulífsins  vegna Rio Tinto á Íslandi hf. annars vegar og Verkalýðsfélagsins Hlífar og VR hins vegar hefst fimmtudaginn 5. nóvember 2020 kl. 11:00 og stendur til kl. 11:00 þriðjudaginn 10. nóvember 2020.

Hægt er að greiða atkvæði í gegnum heimasíður félaganna. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna allra félaganna fer fram á skrifstofu Verkalýðsfélagsins Hlífar að Reykjavíkurvegi 64 í Hafnarfirði fimmtudaginn 5. nóvember 2020 frá kl. 13:00 – 16:00, föstudaginn 6. nóvember 2020 frá kl. 09:00 – 16:00 og mánudaginn 9. nóvember 2020 frá kl. 09:00 – 16:00. Vegna COVID-19 faraldursins eru félagsmenn þó hvattir til þess að greiða atkvæði sitt með rafrænum hætti.

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér vel innihald samningsins og nýta atkvæðisrétt sinn. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar þriðjudaginn 10. nóvember 2020.