Skip to main content

20. og 21. febrúar 2023

 

Staðsetning: Fundarsalur Hlífar – Reykjavíkurvegi 64

Tengiliður: Guðmundur Rúnar Árnason – gra@hlif.is

 

Dagur og tími Mánudagur 20. febrúar Þriðjudagur 21. febrúar
09:00-12:00

Samskipti á vinnustað

 

Guðrún Edda Baldursdóttir

Starfsemi félagsins, kjarasamningar og sjóðir

Starfsmenn félagsins

12:00-13:00 Matarhlé Matarhlé
13:00-15:30

Samskipti á vinnustað

 

Guðrún Edda Baldursdóttir

Starfsemi félagsins, kjarasamningar og sjóðir

Starfsmenn félagsins

 

Stiklur um efnið:

  • Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað, hvernig megi stuðla að góðum samskiptum
  • Skoðuð er mismunandi framkoma, áhrif hennar á okkur og aðra
  • Nemendur kynnast afleiðingum langvarandi slæmra samskipta, eineltis á vinnustað, hvernig bregðast eigi við og ábyrgð gerenda og atvinnurekenda.
  • Nemendur kynnast starfsemi stéttarfélagsins, réttindum félagsmanna
  • Nemendur læra á innihald og uppbyggingu kjarasamninga og helstu túlkun á þeim
  • Nemendur kynnast sjóðum félagsins og réttindum félagsmanna í þeim

 

Nemendur þurfa að skrá sig inn á innri vef Félagsmálaskólans,  www.felagsmalaskoli.is

  • Stofna aðgang með netfangi og lykilorði.
  • Þar sækja nemendur þau námsgögn sem notuð eru fyrir hvern námsþátt.
  • Á innri vef fara fram samskipti nemenda og leiðbeinenda.
  • Nemendur munu geta fylgst með námsframvindu sinni inni á innri vef skólans.
  • Þar munu þeir einnig fylla út námsmat og sækja viðurkenningarskjölin að námskeiðið loknu.
  • Munið að nauðsynlegt er fyrir nemendur að hafa meðferðis fartölvu, ipad eða símann sinn á námskeiðin, þar sem námsefni verður meira eða minna rafrænt frá og með 1. janúar 2018.