Skip to main content

Samið hefur verið um 105 þúsund króna eingreiðslu við samninganefnd ríkisins í tengslum við framlengingu á viðræðuáætlun. Stefnt er að því að ljúka samningum fyrir 15. september.

Samninganefnd SGS og Samninganefnd ríkisins hafa komist að samkomulagi um að endurskoða viðræðuáætlun milli aðila og stefna að því að ljúka kjarasamningi fyrir 15. september næstkomandi. Meginástæðan fyrir þessari framlengingu er sú að á vettvangi heildarsamtaka launafólks er nú verið að ræða launaþróunartryggingu, breytt fyrirkomulag vinnutíma og fleiri veigamikil atriði. Þessi vinna hefur tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir og því er þessi endurskoðun nauðsynleg.

Jafnframt hefur náðst samkomulag um að vegna þess hve langt er síðan gildistími síðustu samninga rann sitt skeið þá verði greidd eingreiðsla að upphæð 105 þúsund kr. fyrir fullt starf 1. ágúst 2019. Sú greiðsla er hluti af fyrirhuguðum launabreytingum þegar þar að kemur.

Sjá samkomulagið