Skip to main content

 

Nýr kjarasamningur á almennum vinnumarkaði var samþykktur með miklum meirihluta atkvæða í sameiginlegri póstatkvæðagreiðslu Flóabandalagsins um samninginn sem lauk á hádegi í dag. Skrifað var undir kjarasamning á almennum vinnumarkaði þann 29. maí sl. eftir langar og strangar samningaviðræður.Kjarasamningurinn gildir frá 1. maí til 31. desember 2018. Hér er að finna kynningabækling um nýjan kjarasamning

Sigurður Bessason, formaður samninganefndar Flóabandalagsins og Eflingar- stéttafélags, segir að það geti enginn efast um það að þessi kjarasamningur njóti stuðnings í samfélaginu nú þegar félagsmenn menn stærstu samningsaðila á almenna vinnumarkaðnum með um 60.000 félagsmenn hafa samþykkt samninginn með miklum meirihluta.

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar eru eftirfarandi:

Almenni kjarasamningurinn – Á kjörskrá voru 17.085

Atkvæði greiddu 2.883 eða 19,9 %

Já sögðu 2.267 eða 78,9 %

Nei sögðu 596 eða 20,7 %

Auðir seðlar voru 10 eða 0,4 % og ógildir seðlar voru 10.