Skip to main content

Samstöðutónleikar Verkalýðsfélagsins Hlífar og STH (Starfsmannafélags Hafnarfjarðar) verða haldnir í Bæjarbíói 1. maí n.k. kl. 15:00. Það er orðin hefð að HLíf og STH bjóði til samstöðutónieika á degi Verkalýðisins í Bæajrbíói.

Dagskráin er ekki af verri endanum. Fram koma þrjú af stóru nöfnunum í íslensku tónlistar og skemmtanalífi í dag:
  • Una Torfa
  • Friðrik Dór
  • Valdimar
Verkalýðsfélagið Hlíf og STH bjóða til tónleikanna og það er frítt inn á meðan húsrúm leyfir. Boðið verður upp á léttar veitingar, gosdrykki, kaffi og sælgæti.
Við opnum Bæjarbíó kl 14:30 og hvetjum fólk til að mæta tímanlega því það er viðbúið að húsið fyllist á stuttum tíma.
Sýnum samstöðu og samgleðjumst í Bæjarbíói þann 1. maí!