Skip to main content

Félagsmenn eru minntir á að laun þeirra sem starfa á taxtalaunum á almennum vinnumarkaði, samkvæmt kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins, hækkuðu um 24.000 kr. þann 1. apríl síðastliðinn. Almenn launahækkun til þeirra sem ekki eru á taxtalaunum hækkuðu um 18.000 kr. frá sama tíma. Aðrir launaliðir sem kveðið er á um í kjarasamningi, s.s. bónusar í fiskvinnslu, hækkuðu um 2,5%.

Lágmarkstekjur fyrir fullt starf í dagvinnu fyrir 18 ára og eldri eftir 6 mánaða starf hjá sama fyrirtæki eru 335.000 kr. frá og með 1. apríl.

Félagsmenn eru hvattir til að fylgjast vel með því að umsamdar launahækkanir skili sér inn á launareikninga og birtist með réttum hætti á launaseðli aprílmánaðar. Ef einhverjar spurningar vakna eru félagsmenn hvattir til að hafa samband við félagið.