Skip to main content

Kjarasamingurinn við SFV samþykktur

By 26.05.2014April 12th, 2019Fréttir, Uncategorized

Atkvæði voru í dag talin í atkvæðagreiðslu Flóafélaganna,  Hlífar, Eflingar og VSFK um samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi við Samtök fyrirtækja í velferðaþjónustu sem  undirritað var þann 8. maí sl.  Samkomulagið var  samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða eða um 87.5% atkvæða.  Þetta þýðir að kjarasamningur er kominn á milli aðila og er afturvirkur frá 1. mars sl. og gildir til 30. apríl 2015.

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru eftirfarandi:

Já        sögðu              351      eða     87.5% þeirra sem atkvæði greiddu
Nei      sögðu                47      eða     11,7%
Auðir seðlar og ógildir voru    3     eða     0,8%
Samkvæmt þessum tölum er samkomulagið samþykkt.
Á kjörskrá voru alls 1674  félagsmenn. Atkvæði greiddu 401 eða 24%. 

Sjá samninginn hér