Skip to main content

Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitafélaga samþykktur

By 29.07.2014April 12th, 2019Fréttir, Uncategorized

Talningu í atkvæðagreiðslu Hlífar, Eflingar og VSFK um kjarasamning við Samband íslenskra sveitafélaga er lokið og var hann samþykktur með meirihluta atkvæða eða 78%. Um er að ræða samning félagsmanna í Hlíf sem starfa hjá Hafnarfjarðarbæ og Garðbæ sem gildir frá 1. maí 2014 til 30. apríl 2015.

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru eftirfarandi:
Já sögðu 124 eða 78,0 %
Nei sögðu 35 eða 22,0 %
Auðir seðlar og ógildir voru 0

Á kjörskrá voru alls 887 félagsmenn. Atkvæði greiddu 159 félagsmenn eða 17,9 %.
Samkvæmt þessum tölum gildir nú nýr kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga.