Stofnanasamningur Hlífar við Sólvang, hjúkrunarheimili
Stofnanasamningur Hlífar og Eflingar við SFV vegna Hrafnistu og fleiri sjálfseignastofnana.
Stofnanasamningur Hlífar við Heilsugæslustöðina, Sólvangi (Word skjal)
Stofnanasamningur Hlífar við Sólvang, hjúkrunarheimili
Stofnanasamningur Hlífar og Eflingar við SFV vegna Hrafnistu og fleiri sjálfseignastofnana.
Stofnanasamningur Hlífar við Heilsugæslustöðina, Sólvangi (Word skjal)
Krónutala desemberuppbótar er mismunandi eftir kjarasamningum.
Einnig getur réttinda ávinnsla desemberuppbótar verið mismunandi eftir kjarasamningum hjá þeim sem starfað hafa styttra en 1 ár hjá sama atvinnurekenda. Bendum fólki á (sem er með styttri starfsaldur en 1 ár) að skoða sinn kjarasamning eða hafa samband við skrifstofu félagsins til að fá upplýsingar.
Allar upphæðir miðast við 100% starfshlutfall.
Desemberuppbót fyrir árið 2016 er:
kr. 82.000,-fyrir starfsfólk á almennum vinnumarkaði (Flói við SA)
kr. 106.250,- fyrir starfsmenn sveitafélaga þ.e.a.s. Hafnarfjarðar og Garðabæjar, Samtökum sjálfstæðra skóla (SSSK) og Skólar ehf..
kr. 82.000,- fyrir starfsmenn ríkisins, hjúkrunarheimila og sjálfseignastofnana. Svo sem starfsmanna hjá Sólvangi, Hrafnistu Hafnarfirði, vegagerðinni o.fl.
kr. 197.391,- fyrir starfsmenn Rio Tinto Alcan.
Hér er að finna þá kjarasamninga sem félagið hefur gert við viðsemjendur sína.
Kjarasamningar fyrir starfsmenn á almennum vinnumarkaði milli Verkalýðsfélagsins Hlífar, Eflingar stéttarfélags og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis við Samtök atvinnulífsins.
Kjarasamningur Flóabandalagsins við SA var samþykktur í atkvæðagreiðslu félagsmanna í 22. júní 2015.
Hér að neðan er að finna það sem undirritað var og samið um þann 29. maí 2015.
Kauptaxtar kjarasamnigsins – 2015
Ný undirritaður kjarasamningur – 2015
Kynningabæklingur um kjarasamninginn – 2015
Fiskvinnsla – samkomulag – 2015
Breyting á Fiskvinnslukafla kjarasamningsinsins – 2015
Fyrir þá félagsmenn Hlífar sem starfa t.d. á Sólvangi, St. Jósefsspítala, Heilsugæslustöðvum, Flensborg, Vegagerðinni o.fl.
Kynningarbæklingur um kjarasamninginn sem samið var um 2015
Viðbætur við samninginn sem samið var um í apríl 2014.
Um er að ræða Kjarasamning Hlífar, Eflingar-stéttafélags og VSFK vegna starfsmanna sem starfa hjá sjálfseignastofnunum og eru aðilar að Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV).
Kynningarbæklingur um kjarasamninginn sem samið var um 2015
Samningur þessi gildir fyrir starfsólk sem starfar hjá Hafnarfjarðarbæ og Garðabæ.
Viðbætur við samninginn sem samið var um í júlí 2014. Gildir frá 1. maí 2014 til 30. apríl 2015.
Kynningarbæklingur um kjarasamninginn sem samið var um 2015 Gildir frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019
Kjarasamningur milli hlutaðeigandi verkalýðsfélaga annars vegar og Alcan í Straumsvík (ISAL) hins vegar.
Gildir frá 1. mars 2016 til 31. maí 2019
Hækkun launa og fjárhagsáhyggjur efstar á baugi. Flestir vilja hærri laun og hækkun lægstu launa á meðan helmingur hefur miklar áhyggjur af fjárhagsstöðu sinni samkvæmt nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Flóabandalagið. Langflestir þátttakenda hafa dregið úr útgjöldum varðandi neyslu á borð við ferðalög, skemmtanir eða tómstundir, en félagsmenn Hlífar telja starfsöryggi sitt meira en félagsmenn í Eflingu og VSFK.
Flestir vilja hærri laun
Í könnuninni vógu launamál þyngst þegar kom að áherslum sem félagsmenn telja mikilvægastar í kjarasamningum við atvinnurekendur og skoruðu þau 8,7 á mikilvægisskalanum núll til tíu. Atvinnuöryggi var þátttakendum könnunarinnar næstmikilvægast, eða 5,5, starfsumhverfi 2,9 en félagsmenn leggja minnsta áherslu á styttingu vinnutíma.
Atvinnuöryggi skiptir fólk meira máli nú en í sambærilegri könnun árið 2007. Þá var atvinnuöryggi í þriðja sæti en er nú í öðru. Stytting vinnutíma var þá í öðru sæti en er nú neðst á lista þessara fjögurra þátta.
Niðurstöðurnar í þessum hluta könnunarinnar eru í samræmi við aðra þætti er varða laun. Athyglisvert er að rúmlega helmingur þátttakenda er frekar, eða mjög ósáttur við laun sín. Þá kemur í ljós að heildarlaun kvenna í 100% starfshlutfalli eru 26% lægri en hjá körlum. Meðalheildargreiðslur karla voru tæpar 336 þúsund krónur en hjá konum rúmar 249 þúsund krónur á mánuði.
Nýr bústaður í Munaðarnesi
Hlíf hefur tekið í notkun nýtt sumarhús í Munaðarnesi. Aðstaða er öll til fyrirmyndar, en húsið er búið öllum helstu þægindum. Þar má nefna heitan pott, flatskjá, DVD spilara og gasgrill. Bústaðurinn var keyptur fokheldur árið 2007 en var fullgerður nú í sumar. Stærð hans er 65 fermetrar og stór verönd er í kringum húsið. Fyrir á félagið fimm sumarhús. Tvö í Vaðnesi, tvö í Ölfusborgum og eitt í Húsafellsskógi. Þá á félagið þrjár orlofsíbúðir á Akureyri. Kolbeinn Gunnarsson formaður Hlífar segir nýja bústaðinn mjög þakkláta viðbót við þann fjölda sumarhúsa sem félagið á fyrir. Þannig verði biðtími eftir að fá bústað á leigu skemmri en verið hefur.